Hera Rut og Thelma Rut Hólmarsdætur sjúkraþjálfarar um langvinna verki og hvernig við náum stjórn á þeim

Hera Rut og Thelma Rut Hólmarsdætur sjúkraþjálfarar um langvinna verki og hvernig við náum stjórn á þeim

0 Anmeldelser
0
Afsnit
66 of 99
Længde
1T 46M
Sprog
Engelsk
Format
Kategori
Personlig udvikling

Í þessum þætti fáum við til okkar systurnar og sjúkraþjálfarana Heru Rut og Thelmu Rut Hólmarsdætur, sem starfa á Reykjalundi. Þær hafa sérhæft sig í aðstoð við fólk sem glímir við langvinna verki og standa að átta vikna fjarnámskeiði sem byggir á heildrænni nálgun og nýjustu verkjavísindum, með fræðslu, heimaæfingum og stuðningi.

Við förum yfir hvernig fræðsla um verki, markviss hreyfing og raunhæf verkfæri í daglegu lífi geta hjálpað fólki að róa taugakerfið, draga úr ótta sem oft magnar verkina – og þar með minnka verki og bæta líðan. Um leið eykst öryggi í líkamanum, sem er lykillinn að því að byggja upp meiri getu til að takast á við daglegt líf.

Við ræðum líka mikilvægi stuðnings, spurninga og eftirfylgni í ferlinu. Að auki förum við yfir grunnþættina sem skipta máli þegar kemur að verkjum og bata: næringu, hreyfingu, svefn og félagsleg tengsl – og hvernig þessir þættir vinna saman til að styðja við betri heilsu og meiri lífsgæði.

Í þættinum ræðum við m.a.

Hvað “langvinnir verkir” eru (og af hverju þeir geta haldist þó vefir séu að gróa) •

Hvernig fræðsla og skilningur á verkjum getur breytt upplifun og hegðun •

Hvernig hreyfing og æfingar geta verið “lyf” – þegar þær eru rétt skammtaðar og aðlagaðar •

Aðferðir til að lina verki, róa kerfið og lifa betur með þeim í daglegu lífi •

Stuðning, eftirfylgni og raunhæf skref til að ná stjórn aftur •

✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨

🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is •

💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is •

🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is •

🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is •

🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is •

🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is •

🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is •


Lyt når som helst, hvor som helst

Nyd den ubegrænsede adgang til tusindvis af spændende e- og lydbøger - helt gratis

  • Lyt og læs så meget du har lyst til
  • Opdag et kæmpe bibliotek fyldt med fortællinger
  • Eksklusive titler + Mofibo Originals
  • Opsig når som helst
Prøv nu
Cover for Hera Rut og Thelma Rut Hólmarsdætur sjúkraþjálfarar um langvinna verki og hvernig við náum stjórn á þeim

Other podcasts you might like ...