🎧 Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms🎧
Í þessum þætti fáum við til okkar Michael Clausen, barna- og ofnæmislækni, sem hefur starfað á Landspítalanum í yfir 25 ár. Hann hefur rannsakað og fylgst með þróun ofnæma og sjálfsofnæmissjúkdóma sem hafa margfaldast í vestrænum heimi síðustu áratugi.
Við ræðum meðal annars:
•
hvers vegna ofnæmi og sjálfsofnæmissjúkdómar hafa aukist svo mikið frá 1950 •
•
áhrif eiturefna í umhverfinu og yfir 350.000 efna sem hafa bæst í líf okkar á örfáum áratugum •
•
ýruefni í matvælum, snyrtivörum og kremum sem rjúfa húð, meltingarveg og lungu •
•
of mikið hreinlæti og náttúruleysi í lífsstíl okkar •
•
muninn á mjólkuróþoli og mjólkurofnæmi og hvernig greina má einkennin •
•
hvernig þarmaflóran og ónæmiskerfið spila saman •
•
hvers vegna börn með exem eru líklegri til að fá ofnæmi •
•
álsölt í bólusetningum og margt fleira. •
„Aftur til náttúrunnar“ segir Michael – hann vitnar í Sókrates og Hippókrates, sem bentu á mikilvægi þess að hreyfa sig, borða hollt, rækta sálina og taka ábyrgð á eigin heilsu.
Þátturinn er hlaðinn gagnlegum upplýsingum fyrir foreldra, fagfólk og alla sem vilja skilja betur hvernig umhverfið, mataræðið og lífsstíllinn hefur áhrif á ónæmiskerfið og ofnæmi.
🌱 Við erum stoltar af því að kynna Spírunna sem nýjan samstarfsaðila í Heilsuhernum okkar!
Spíran er fjölskylduvænn bístróstaður í Garðheimum sem leggur áherslu á hollan og góðan mat – gerðan frá grunni úr gæða hráefnum. Þar fær fjölskyldan að njóta nærandi rétta sem styðja við heilsuna.
💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem ætla að taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur:
•
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. •
•
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. •
•
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. •
•
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. •
•
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. •
•
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu. •
•
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. •
✨ Við þökkum öllum samstarfsaðilum kærlega fyrir að vera hluti af Heilsuhernum – á leið til betri heilsu fyrir alla.
Nyd den ubegrænsede adgang til tusindvis af spændende e- og lydbøger - helt gratis
Dansk
Danmark