Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Thorsson
- Forfatter
- Afsnit
- 101
- Udgivet
- 17. sep. 2026
- Forlag
- 0 Anmeldelser
- 0
- Afsnit
- 101 of 99
- Længde
- 1T 8M
- Sprog
- Engelsk
- Format
- Kategori
- Personlig udvikling
🌿 Kannabis – frá fordómum yfir í fræðslu, rannsóknir og upplýstari notkun
Í Heita potti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Magnus Thorsson, prófessor í frumkvöðlafræði við Johnson & Wales University í Bandaríkjunum og stofnanda Canna Curious Wellness.
Magnús hefur um árabil rannsakað neytendahegðun, nýsköpun og kannabismarkaðinn og tekið þátt í að þróa háskólanám tengt kannabis og frumkvöðlafræði. Hann hefur því fylgst náið með þeirri gríðarlegu breytingu sem orðið hefur í Bandaríkjunum þar sem kannabis hefur víða færst úr neðanjarðarheimi yfir í löglegan og ört vaxandi markað.
🌱 En hvað hefur þessi reynsla kennt okkur?
Við ræðum við Magnús um kannabis frá mörgum hliðum – THC, CBD, CBG, terpena og önnur virk efni plöntunnar.
Við tölum líka um notkun kannabis í tengslum við svefn, verki, streitu, slökun og lífsgæði, og hvers vegna fólk yfir fimmtugu er orðið sérstaklega áhugaverður hópur í þessari þróun. Hvar liggja raunveruleg tækifæri – og hvar þarf að stíga varlega til jarðar?
🍷 Getur kannabis hjálpað fólki að draga úr neyslu áfengis? 🌿 Hver er munurinn á CBD, THC og öðrum kannabínóíðum? ⚖️ Hvernig hefur tekist við lögleiðingu í Bandaríkjunum? 🇮🇸 Og hvað gæti Ísland lært af reynslu þeirra ríkja sem hafa þegar farið þessa leið?
🎙️ Forvitnilegt, opið og fræðandi samtal við Íslending sem hefur setið í fremstu röð og fylgst með einni mestu breytingu sem orðið hefur á viðhorfum, löggjöf og neytendahegðun í kringum kannabis á síðustu árum.
❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins
🏋️ Hreyfing – heilsurækt þar sem hreyfing, vellíðan og heilsa fara saman - hreyfing.is 🛒 Nettó – uppskerudagar - frábær tilboð á nýju íslensku grænmeti og fleiru - netto.is 🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - biobu.is 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru -
Other podcasts you might like ...
- Storie ConsapevoliGionata Agliati
- Ask a ScientistScience Journal for Kids
- Story Of LanguagesSnovel Creations
- Rise With ZubinRise With Zubin
- Quint Fit EpisodesQuint Fit
- 'I AM THAT' by Ekta BathijaEkta Bathija
- Intrecci - L’arte delle relazioni Ameya Gabriella Canovi
- Chillin' with ICECloud10
- Minimal-ish: Minimalism, Intentional Living, MotherhoodCloud10
- Talk To Me In KoreanTTMIK
- Storie ConsapevoliGionata Agliati
- Ask a ScientistScience Journal for Kids
- Story Of LanguagesSnovel Creations
- Rise With ZubinRise With Zubin
- Quint Fit EpisodesQuint Fit
- 'I AM THAT' by Ekta BathijaEkta Bathija
- Intrecci - L’arte delle relazioni Ameya Gabriella Canovi
- Chillin' with ICECloud10
- Minimal-ish: Minimalism, Intentional Living, MotherhoodCloud10
- Talk To Me In KoreanTTMIK
