Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms
- Forfatter
- 0 Anmeldelser
- 0
- Afsnit
- 99
- Gns. varighed
- 1T 34M
- Sprog
- Engelsk
- Format
- Kategori
- Personlig udvikling
Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá?
Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%.
Hvernig getum við snúið þessari þróun við og stutt líkamann í að viðhalda heilbrigði ævina út?
Það er ótrúlega góð tilfinning að vita að maður sjálfur getur haft áhrif á heilsu sína – að maður sé ekki bara eins og korktappi úti á rúmsjó sem hefur ekkert að segja um það hvert ferðinni er heitið. Að maður getur virkilega haft áhrif á það hvort maður veikist eða ekki. Við sækjumst flest eftir aukinni vellíðan, orku, heilbrigðu útliti og síðast en ekki síst að geta verið við góða heilsu með börnum okkar og barnabörnum eins lengi og kostur er. Þess vegna skiptir máli að huga að lífsstílnum.
Í þáttunum ætlum við að bjóða upp á fjölbreyttar og fræðandi umræður um allt sem tengist heilsu og heilbrigði, kafa djúpt í heilsutengd málefni og heilbrigðiskerfið og spyrja gagnrýnna spurninga. Við fáum til okkar áhugaverða gesti og sérfræðinga úr heilsugeiranum, auk fólks sem hefur fetað óhefðbundnar leiðir til að takast á við veikindi og sjúkdóma. Áhrifaþættir á heilsu eru svo fjölmargir og af nógu að taka.
Markmiðið er að valdefla okkur og fræðast til heilsueflingar!
Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar!
Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur - biobu.is
Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum - braudogco.is
Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir - styður fólk til betri heilsu - greenfit.is
Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist - husaskjol.is
Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu - hreyfing.is
Nettó - í forystu heilsueflingar á smávörumarkaðnum - með bestu heilsudeild landsins - netto.is
Episodes
- Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Thorsson🌿 Kannabis – frá fordómum yfir í fræðslu, rannsóknir og upplýstari notkun Í Heita potti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Magnus Thorsson, prófessor í frumkvöðlafræði við Johnson & Wales University í Bandaríkjunum og stofnanda Canna Curious Wellness. Magnús hefur um árabil rannsakað neytendahegðun, nýsköpun og kannabismarkaðinn og tekið þátt í að þróa háskólanám tengt kannabis og frumkvöðlafræði. Hann hefur því fylgst náið með þeirri gríðarlegu breytingu sem orðið hefur í Bandaríkjunum þar sem kannabis hefur víða færst úr neðanjarðarheimi yfir í löglegan og ört vaxandi markað. 🌱 En hvað hefur þessi reynsla kennt okkur? Við ræðum við Magnús um kannabis frá mörgum hliðum – THC, CBD, CBG, terpena og önnur virk efni plöntunnar. Við tölum líka um notkun kannabis í tengslum við svefn, verki, streitu, slökun og lífsgæði, og hvers vegna fólk yfir fimmtugu er orðið sérstaklega áhugaverður hópur í þessari þróun. Hvar liggja raunveruleg tækifæri – og hvar þarf að stíga varlega til jarðar? 🍷 Getur kannabis hjálpað fólki að draga úr neyslu áfengis? 🌿 Hver er munurinn á CBD, THC og öðrum kannabínóíðum? ⚖️ Hvernig hefur tekist við lögleiðingu í Bandaríkjunum? 🇮🇸 Og hvað gæti Ísland lært af reynslu þeirra ríkja sem hafa þegar farið þessa leið? 🎙️ Forvitnilegt, opið og fræðandi samtal við Íslending sem hefur setið í fremstu röð og fylgst með einni mestu breytingu sem orðið hefur á viðhorfum, löggjöf og neytendahegðun í kringum kannabis á síðustu árum. ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🏋️ Hreyfing – heilsurækt þar sem hreyfing, vellíðan og heilsa fara saman - hreyfing.is 🛒 Nettó – uppskerudagar - frábær tilboð á nýju íslensku grænmeti og fleiru - netto.is 🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - biobu.is 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru -101|1T 8M
- Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft🎙️ Að ganga aftur á bak og hvað heldur okkur ungum – í líkama og sál? Í þessum þætti fáum við til okkar Hörð Torfason, einn af litríkari og merkilegri persónum íslenskrar menningar- og samfélagssögu. Hörður er söngvaskáld, leikari, leikstjóri, leikskáld og mannréttindabaráttumaður og hefur í meira en hálfa öld látið rödd sína heyrast – bæði á sviði og í samfélagsumræðunni. Hörður fæddist árið 1945 og varð 81 árs á þessu ári – en þegar maður hittir hann er erfitt að trúa þeirri tölu. Hann er léttur í spori, orkumikill og lítur út fyrir að vera áratugum yngri. 🌱✨ Upphaflega ætluðum við að ræða við Hörð um eitt sérstakt atriði sem hann hefur tekið upp: að ganga aftur á bak. 🚶♂️↩️ Hann segir okkur hvers vegna hann byrjaði á því, hvaða breytingum hann fann fyrir og hvernig þetta hefur orðið hluti af því sem hann gerir til að halda líkamanum gangandi. En spjallið fór fljótt miklu víðar. ❤️ Við tölum um heilsu, hreyfingu, öldrun, lífið og tilveruna, hvernig við getum haldið áfram að rækta forvitni og lífskraft eftir því sem árin færast yfir og hvað Hörður sjálfur gerir dagsdaglega til að viðhalda bæði líkamlegri og andlegri heilsu. 🎙️ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms Þátturinn er unninn í samstarfi við frábæra samstarfsaðila okkar: 💚 Hreyfingu – þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan eru í fyrirrúmi. Námskeið að hefjast! Ef þú hefur ekki komið til þeirra áður eða þarft aðstoð við að koma þér af stað getur þú bókað frían tíma með ráðgjafa hér! 🐄 Bíóbú – BioBú er fjölskyldufyrirtæki í fremstu röð í framleiðslu á lífrænum mjólkurvörum. Íslenskar lífrænar mjólkurvörur fyrir þau sem vilja velja lífrænt og njóta góðra mjólkurvara. biobu.is 🥩 Kjarnafæði – nýr samstarfsaðili Heilsuhlaðvarpsins! Við bjóðum Kjarnafæði hjartanlega velkomið í hópinn. Þar má meðal annars finna lifrarpylsuna og sviðasultuna, gerðar eftir gömlu góðu uppskriftunum, án aukaefna. Íslenskur matur og hefðir sem eiga svo sannarlega erindi við okkur enn í dag. 💛 🛒 Nettó – Uppskerudagar! Frábær tliboð á íslensku grænmeti og öðrum góðum vörum fyrir heimilið þitt. - kíktu á tilboðin á netto.is. 🥦 Greenfit – fyrir góða heilsu! Heilsumælingar, rauð ljós, súrefnis- og kuldameðferðir - greenfit.is.100|1T 16M
- Heiti potturinn | Þegar kerfið hefur ekki svörin | Meira val, frelsi og nýjar leiðir að heilsu | Þórarinn Ævarsson og Þórunn „Tóta“ Þórs Jónsdóttir🌿 Eigum við að hafa meira val og meira frelsi þegar kemur að okkar eigin heilsu? Í þessum þætti eigum við opið og afar áhugavert samtal við Þórarinn Ævarsson og Þórunni „Tótu“ Þórs Jónsdóttur, stofnanda og drifkraftinn á bak við alþjóðlegu ráðstefnuna Health for the Future, sem fram fer í IÐNÓ dagana 18.–20. september. Við fórum víðan völl en rauði þráðurinn var einfaldur: Hvernig getum við skapað heilbrigðiskerfi þar sem fólk hefur fleiri raunverulega valkosti í sinni vegferð að betri heilsu? 💊 Hversu margir Íslendingar eru í dag á sterkum og jafnvel ávanabindandi lyfjum árum saman – og hversu auðvelt er að byrja að taka þau en erfitt að komast aftur af þeim? 🧩 Hvað verður um fólkið sem dettur á milli kerfa, fer á milli lækna og meðferða en finnur samt ekki lausn sinna mála? 🌱 Við ræðum reynslu fólks af kannabisi til lækninga og þær sögur þar sem einstaklingar segjast hafa náð miklum bata, dregið verulega úr hefðbundinni lyfjameðferð eða jafnvel hætt lyfjum sem þeir höfðu tekið árum saman og glímt við miklar aukaverkanir af. 🧠 Við förum einnig inn á vaxandi rannsóknir og umræðu um hugbreytandi efni í meðferð, möguleikana sem þar kunna að felast og hvers vegna mikilvægt er að geta rætt þessi mál af yfirvegun, byggt á vísindum, reynslu og öryggi – í stað þess að loka umræðunni fyrirfram. Við spyrjum meðal annars: Er heilbrigðiskerfið nægilega opið fyrir nýjum leiðum þegar hefðbundnar meðferðir duga ekki? Hver á að ráða hvaða meðferð einstaklingur má skoða? Og hvernig aukum við val án þess að slaka á kröfum um öryggi og fagmennsku? Þórarinn og Tóta segja jafnframt frá sinni eigin reynslu af veikindum og heilbrigðiskerfinu, reynslu sem hefur mótað sýn þeirra á þessi mál og löngunina til að opna umræðuna. Health for the Future leiðir saman lækna, vísindafólk, sjúklinga, frumkvöðla og fólk með ólíka reynslu til að ræða hvernig framtíð heilbrigðisþjónustunnar getur orðið opnari, fjölbreyttari og mannlegri. 🎧 Hugvekjandi og hreinskilið samtal um heilbrigðiskerfið eins og það er í dag – og hvernig það gæti litið út í framtíðinni ef við þorum að opna fleiri dyr. ✨ Við hvetjum alla sem láta sig þessi mál varða til að koma á Health for the Future og vera hluti af breytingunni. 🎟️ Afsláttarkóði: ICELAND33 Notið kóðann þegar þið kaupið miða á ráðstefnuna. 👉 Miðar: tickets.healthforthefuture.is Komum saman, tökum þátt í samtalinu og verum hluti af þeirri breytingu sem við viljum sjá í heilbrigðiskerfinu. 🌿 ------- 🎙️ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms Þátturinn er unninn í samstarfi við frábæra samstarfsaðila okkar: 💚 Hreyfingu – þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan eru í fyrirrúmi. Námskeið að hefjast! hreyfing.is 🐄 Bíóbú – Íslenskar lífrænar mjólkurvörur fyrir þau sem vilja velja lífrænt og njóta góðra mjólkurvara. 🥩 Kjarnafæði – nýr samstarfsaðili Heilsuhlaðvarpsins! Við bjóðum Kjarnafæði hjartanlega velkomið í hópinn. Þar má meðal annars finna lifrarpylsuna og sviðasultuna, gerðar eftir gömlu góðu uppskriftunum, án óþarfa aukaefna. Íslenskur matur og hefðir sem eiga svo sannarlega erindi við okkur enn í dag. 💛 🛒 Nettó – sem auðveldar okkur að velja vel í daglegu lífi. Frábær tilboð á netto.is. 🥦 Greenfit – fyrir góða heilsu! Heilsumælingar, rauð ljós, súrefnis- og kuldameðferðir - greenfit.is.99|1T 48M
- Sjúkdómurinn sem breytti öllu – og baráttan fyrir fleiri valkostum í heilbrigðiskerfinu | Siggi Jóhannesson | Hampur til lækninga🎙️ Hvað gerist þegar dóttir þín greinist með einn flóknasta og sjaldgæfasta taugasjúkdóm heims – og framtíðin er allt í einu full af óvissu? Í þessum þætti ræðum við við Sigurð Hólmar Jóhannesson, Sigga Jóhannesson, um einstaka vegferð hans og eiginkonu hans Ragnheiðar Erlu Hjaltadóttur eftir að dóttir þeirra, Sunna Valdís, greindist um eins árs aldurinn með Alternating Hemiplegia of Childhood (AHC). Sunna Valdís er orðin tvítug í dag og hefur fjölskyldan í nær tvo áratugi tekist á við áskoranir sem fáir geta ímyndað sér. En þetta er ekki aðeins saga um erfiðleika. Þetta er saga um æðruleysi, ótrúlega þrautseigju, ást og fólk sem ákvað að láta eigin reynslu verða öðrum til góðs. 💛 Við ræðum meðal annars: 🧠 AHC – sjúkdóminn sem breytti öllu. Hvernig birtist hann, hvað þýðir hann fyrir daglegt líf og hvernig hefur fjölskyldan tekist á við óvissuna? 👨👩👧 Vegferð fjölskyldunnar. Hvernig halda foreldrar áfram þegar barnið þeirra glímir við svo alvarleg veikindi? Hvað hefur þessi reynsla kennt þeim um lífið, vonina og það sem raunverulega skiptir máli? 🌿 CBD og baráttuna fyrir aðgangi að meðferð. Siggi segir frá því hversu mikilvægt CBD reyndist Sunnu Valdísi og hvernig fjölskyldan þurfti að berjast fyrir því að geta veitt henni þá meðferð sem þau töldu hjálpa henni. Við ræðum stofnun Hampfélagsins, innflutning CBD-olía, verslunina sem þau stofnuðu og átökin við kerfið. 🔬 Hvað hafa vísindin sýnt um lækningalega möguleika kannabisefna? 🏥 Heilbrigðiskerfið – og hvað þarf að breytast? Hvað gerist þegar fjölskyldur þurfa sjálfar að leita lausna, berjast fyrir hjálpartækjum eða knýja fram breytingar? Og hvernig getur reynsla þeirra nýst öðrum sem glíma við langvinn veikindi eða fötlun? ♿ Hjálpartæki sem bæta lífsgæði. Fjölskyldan hóf einnig innflutning hjálpartækja fyrir fatlað fólk og hefur barist fyrir því að aðgangur að þeim sé betri. 🌍 Frá Íslandi til rannsóknarstofa Evrópu og Bandaríkjanna. Siggi segir frá því hvernig þau hafa tengt saman vísindafólk, fjölskyldur og samtök, stutt rannsóknir á AHC, stofnað samtök á heimsvísu og hér á landi og unnið að heimildarmyndum sem vekja athygli á sjúkdómnum. ⌚ VALDÍS – úr sem ber nafn dótturinnar. Við ræðum nýjasta verkefni Sigga, úr sem hann hannaði og tileinkaði Sunnu Valdísi, þar sem markmiðið er að styðja rannsóknir og færa fjölskyldum um allan heim meiri von. ✨ Þetta er þáttur sem á erindi við miklu fleiri en þá sem þekkja AHC. Hér er að finna reynslu, upplýsingar og hugmyndir sem geta nýst fólki sem glímir við hvers kyns sjúkdóma, langvinn veikindi eða fötlun – og aðstandendum þeirra. Um leið er þetta hugvekjandi samtal um það hvernig einstaklingar geta haft áhrif á samfélagið, breytt kerfum og opnað nýjar leiðir fyrir aðra. Hlustaðu á einstaka sögu um ást, baráttu og von – og hvernig erfiðasta reynsla lífsins getur orðið að afli sem bætir líf annarra. 🎧💛 🎙️ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms Þátturinn er unninn í samstarfi við frábæra samstarfsaðila okkar: 💚 Hreyfingu – þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan eru í fyrirrúmi. Námskeið að hefjast! hreyfing.is 🐄 Bíóbú – Íslenskar lífrænar mjólkurvörur fyrir þau sem vilja velja lífrænt og njóta góðra mjólkurvara. 🥩 Kjarnafæði – nýr samstarfsaðili Heilsuhlaðvarpsins! Við bjóðum Kjarnafæði hjartanlega velkomið í hópinn. Þar má meðal annars finna lifrarpylsuna og sviðasultuna, gerðar eftir gömlu góðu uppskriftunum, án aukaefna. Íslenskur matur og hefðir sem eiga svo sannarlega erindi við okkur enn í dag. 💛 🛒 Nettó – sem auðveldar okkur að velja vel í daglegu lífi. Frábær tilboð á netto.is. 🥦 Greenfit – fyrir góða heilsu! Heilsumælingar, rauð ljós, súrefnis- og kuldameðferðir - greenfit.is. ----- 🌿 Ráðstefnan sem við ræddum um og Siggi kemur fram á: Health for the Future: healthforthefuture.is — 33% afsláttur fyrir Íslendinga af miðum á viðburðinn. 🛍️ Betri dagar – verslun fjölskyldunnar: betridagar.is — CBD-olíur og aðrar vörur sem þau hafa kynnt og flutt inn. 🧠 AHC-samtökin á Íslandi: ahc.is — upplýsingar um sjúkdóminn, starf samtakanna og baráttuna fyrir rannsóknum og bættum lífsgæðum fólks með AHC og fjölskyldna þeirra.98|2T 5M
- Heyrnarskerðing og áhrif á lífið og heilaheilsu | Mikilvægi snemmbærrar greiningar | Er kominn tími á heyrnarpróf? | Eva Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalæknir með sérhæfingu í heyrnarfræðum👂 Heyrnin – eitt mikilvægasta skynfærið sem við megum ekki taka sem sjálfsögðum hlut Í þessum þætti ræðum við við Evu Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalækni með sérhæfingu í heyrnarfræðum, um heyrnina – hvernig hún virkar, hversu mikilvæg hún er fyrir lífsgæði okkar og hvað við getum gert til að varðveita hana sem lengst. Heyrnarskerðing þróast oft hægt og lúmskt og margir átta sig ekki á því hversu mikið heyrnin hefur minnkað fyrr en hún er farin að hafa áhrif á samskipti, félagslíf og daglegt líf. En heyrnin tengist líka miklu fleiru en því að „heyra vel“. 🧠 Rannsóknir hafa meðal annars sýnt sterk tengsl milli ómeðhöndlaðrar heyrnarskerðingar og aukinnar hættu á vitrænni hnignun og heilabilun. Í þættinum ræðum við meðal annars: 👂 Hvernig heyrnin virkar og hvað gerist þegar hún byrjar að skerðast 🔊 Helstu áhættuþætti heyrnarskerðingar – hávaða, aldur, erfðir, sjúkdóma og fleira 🎧 Hvernig við getum varið heyrnina í daglegu lífi - áhrif heyrnartóla - airpods 🧒 Af hverju góð heyrn skiptir gríðarlegu máli fyrir málþroska, nám og þroska barna 🩺 Hvers vegna mikilvægt er að uppgötva heyrnarskerðingu snemma 🧠 Tengsl heyrnarskerðingar við félagslega einangrun, vitrænni hnignun, heilabilun og Alzheimer 🔬 Hvaða heyrnartækni er í boði í dag – og hvað hefur breyst á síðustu árum 🦻 Hvenær heyrnartæki koma til greina og hvers vegna margir bíða allt of lengi 📊 Hvenær við ættum að fara í heyrnarpróf – jafnvel þótt okkur finnist við heyra ágætlega ⏳ Og mikilvæga spurningin: Getur verið orðið of seint að láta athuga heyrnina? Þetta er þáttur fyrir okkur öll – unga sem aldna – því góð heyrn snýst ekki bara um eyru. Hún snýst um samskipti, tengsl, virkni, sjálfstæði og lífsgæði. ❤️ 🎙️ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms Þátturinn er unninn í samstarfi við frábæra samstarfsaðila okkar: 💚 Hreyfingu – þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan eru í fyrirrúmi. Námskeið að hefjast! hreyfing.is 🛒 Nettó – sem auðveldar okkur að velja vel í daglegu lífi. Frábær tilboð á heilsudögum - netto.is. 🥦 Greenfit – fyrir góða heilsu! Heilsumælingar, rauð ljós, súrefnis- og kuldameðferðir - greenfit.is. 💧 Happy Hydrate – fyrir vökvun og steinefni sem styðja við rafleiðni líkamans - happyhydrate.is. ✨ GeoSilica – kísill unnin úr íslensku hitaveituvatni - náttúruafurð. Kísill er meðal annars mikilvægur fyrir uppbyggingu og styrk bandvefja, húðar, hárs og naglna. Geosilica.is. 🎧 Hlustaðu – og kannski er kominn tími til að bóka heyrnarpróf.97|1T 32M
- Hvernig verður öldrunarþjónusta framtíðarinnar - hvað þurfum við að gera og hvernig viljum við eldast? María Fjóla Harðardóttir fyrrverandi forstjóri Hrafnistu👵🏼 Hvernig viljum við eldast – og er kerfið tilbúið fyrir það sem er fram undan? Í þessum þætti ræðum við við Maríu Fjólu Harðardóttur, hjúkrunarfræðing og fyrrverandi forstjóra Hrafnistu, sem hefur áratuga reynslu af öldrunarþjónustu og einstaka innsýn í það sem þarf að breytast. Við lifum lengur, eldri borgurum fjölgar hratt og álagið á kerfið mun aukast verulega á næstu árum. María Fjóla er skýr: kerfið verður að breytast. En hvernig? 🏡 Verður framtíðin fólgin í meiri þjónustu inn á heimilin? 🤖 Getur tæknin hjálpað okkur að búa lengur sjálfstætt? 💪 Hvað getum við sjálf gert í tíma til að undirbúa efri árin? ❤️ Hversu mikilvæg eru hreyfing, félagsleg tengsl, húsnæði og lífsgæði þegar við eldumst? 👥 Og hvernig getur samfélagið brugðist við fjölgun aldraðra án þess að gæði þjónustunnar skerðist? Við tölum líka um það sem kannski fáir vilja hugsa um fyrr en nauðsyn krefur: Hvernig viljum við sjálf hafa það þegar við verðum 80, 90 ára eða eldri? Og hvað getum við gert í dag til að eiga meiri möguleika á sjálfstæði og góðum lífsgæðum síðar? Hugvekjandi og mikilvægt samtal um mál sem snerta okkur öll – því öldrunarþjónusta framtíðarinnar snýst ekki bara um „aldraða“. Hún snýst um framtíð okkar allra. 🌿 🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb. 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is 🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS) 🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.96|1T 12M
- Mögnuð saga 13 ára drengs sem lamaðist skyndilega og var sagt að hann gæti aldrei gengið aftur | Magnús Helgason & Sigurbjörg Ýr GuðmundsdóttirLífið breytist á einu augabragði. En von og þrotlaus vinna flytur fjöll! ✨ Sumarið 2023 breyttist líf hins 13 ára íþróttastráks Magnúsar Mána á einni nóttu þegar hann lamaðist skyndilega frá bringu og niður. Yfirlæknir spáði því að hann myndi eyða ævinni í hjólastól en fjölskyldan neitaði að gefast upp. Eftir mikla vinnu með blöndu af æfafornum náttúruaðferðum og krefjandi hátækniendurhæfingu á Spáni hefur Magnús náð að ganga á ný og náði nýverið þeim magnaða áfanga að sparka í fótbolta á ný í fyrsta sinn síðan áfallið dundi yfir! ⚽️🔥 Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins heyrum við einlægt og áhrifamikið viðtal við foreldra hans, Magnús Helgason og Sigurbjörgu Ýr Guðmundsdóttur sem bæði ætla að hlaupa til styrktar endurhæfingu sonar síns í Reykjavíkurmaraþoni í ágúst. 🏃♂️ Sýnum samstöðu: Hlaupum eða heitum á hópinn sem hleypur til styrktar Magnúsi Mána í Reykjavíkurmaraþoninu! 🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb. 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is 🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS) 🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.95|1T 21M
- Heilandi garðar við sjúkrahús – lúxus eða nauðsynlegir innviðir? Hvernig er staðan við nýja Landspítalann? Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir og Svanhildur 'Sasa' SigurðardóttirHeilandi garðar við sjúkrahús – lúxus eða nauðsynlegir innviðir? Hvernig er staðan við nýja Landspítalann? Í þessum þætti ræðum við við Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur og Svanhildi „Sösu“ Sigurðardóttur um heilandi garða og mikilvægi náttúrunnar í og við sjúkrahús. Guðfinna skrifaði á sínum tíma lokaritgerð um heilandi garða og möguleika þeirra á Íslandi og hefur lengi haft sérstakan áhuga á því hvernig græn svæði, dagsbirta og tenging við náttúruna geta stutt við líðan og bata sjúklinga – en einnig aðstandenda og heilbrigðisstarfsfólks. Sasa kemur að málinu frá öðru sjónarhorni. Hún er sjálf að glíma við krabbamein og fundið á eigin skinni hversu mikil þörf getur verið fyrir að komast út úr klínísku umhverfi spítalans, fá ferskt loft og vera í grænu og róandi umhverfi. Facebook-færsla sem hún skrifaði um málið vakti mikil viðbrögð – ekki síst frá heilbrigðisstarfsfólki. Leiðir Guðfinnu og Sösu lágu saman í baráttunni fyrir því að heilandi garðar verði teknir alvarlega í skipulagi nýja Landspítalans. 🌿 Hvað eru heilandi garðar og hvað skilur þá frá venjulegum útisvæðum? 🏥 Af hverju eru slík svæði í auknum mæli talin hluti af grunninnviðum nútímasjúkrahúsa en ekki bara falleg viðbót? 🧠 Hvaða áhrif geta náttúra, dagsbirta og gróður haft á streitu, taugakerfið og líðan fólks í veikindum? ❤️ Hvernig upplifði Sasa sjálf þörfina fyrir náttúru og græn svæði á meðan hún gekk í gegnum krabbameinsmeðferð? 🌱 Hvernig þarf að hanna heilandi garða svo þeir nýtist raunverulega sjúklingum – líka fólki með skerta hreyfigetu eða mjög veikum einstaklingum? 🏗️ Og stóra spurningin: Hvernig er staðan við nýja Landspítalann? Hefur verið gert nægilegt ráð fyrir heilandi görðum og grænum svæðum – og er hætta á að tækifærið glatist ef ekki er brugðist við áður en uppbyggingin gengur lengra? Við ræðum hvort við þurfum að endurhugsa sjálfa hugmyndina um sjúkrahús – frá því að vera eingöngu staður þar sem sjúkdómar eru meðhöndlaðir yfir í umhverfi sem í heild sinni styður við bata, vellíðan og mannlega reisn. 🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb. 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is 🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS) 🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.94|1T 28M
- Er golf bara dýr og tímafrek yfirstéttaríþrótt eða leynist þar lykillinn að bættri lýðheilsu, minni einmanaleika og hraustari og hamingjusamari þjóð? | Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands ÍslandsÍ þessum bráðskemmtilega og kraftmikla þætti af heilsuhlaðvarpi Lukku og Jóhönnu mæta þær Huldu Bjarnadóttur, fyrsta kvenkyns forseta Golfsambands Íslands. Hulda, sem er þekkt fyrir að vera algjör „jarðýta“ sem kemur ótrúlegustu hlutum í verk, mætir þáttastjórnendum sem viðurkenna fúslega eigin fordóma og mótþróa gagnvart golfíþróttinni – en það stendur ekki steinn yfir steini þegar líður á spjallið! Hulda kynnir nýstárlegar rannsóknir sem hafa vakið heimsathygli og leiddu til þess að henni var boðið að halda erindi á stærsta þingi R&A (sjálfs „FIFA golfheimsins“). Niðurstöðurnar sýna svart á hvítu að golfhreyfingin skilar hvorki meira né minna en 31 milljarði króna í samfélagslegt virði á ári á Íslandi. Hver einasta króna sem lögð er í golfið skilar sér tvö- til fjórfalt til baka í formi samfélagslegs sparnaðar, hagrænna áhrifa og stórbættra lífsgæða. Hér er kafað djúpt í það hvers vegna golf er einstakt: • Öfug þróun við aðrar íþróttir: Ástundun eykst með hækkandi aldrin í stað þess að dvína. • Heilsufarslegur ávinningur: Viðtalið sýnir hvernig reglulegir golfhringir lækka blóðþrýsting á við lyf, halda heilanum ferskum og drífa fólk út úr einmanaleika, einni stærstu heilsuógn nútímans, inn í félagsleg tengsl. • Mýturnar hraktar: Hulda útskýrir hvernig hægt er að stunda sportið á ódýran máta, spila styttri velli eins og „ljúflinga“ eða 5-9 holur og hvers vegna golfvellirnir eru mikilvæg, græn útivistarsvæði inn í miðjum hverfum en ekki bara lokuð keppnismannvirki. Spjallið fer um víðan völl og snertir einnig andlegu hliðina, skemmtilega „golfveiki“, „19. holuna“, og jafnvel hugmyndir um að hanna fótlaga golfskó með koparþráðum fyrir þá sem vilja tengjast jörðinni betur á meðan þeir spila. Þetta er áhugaverð hlustun fyrir alla sem vilja skilja hvernig við getum stuðlað að bættri heilsu og líðan með því að mæta hamingjusama fólkinu út á grasi. 🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb. 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is 🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS) 🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.93|1T 27M
- Auður Elísabet Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur og IFS meðferðaraðili – Pendúll taugakerfisins og krabbameinsgreiningar - hluti 1Pendúll taugakerfisins – innra öryggi, IFS og krabbameinsvegferðin Í þessum þætti ræðum við við Auði Elísabetu Jóhannsdóttur hjúkrunarfræðing og IFS meðferðaraðila um taugakerfið, áföll, krabbameinsvegferðina og það hvernig við getum skapað meira innra öryggi. 🧠 Pendúll taugakerfisins Hvernig sveiflast heilbrigt taugakerfi á milli virkni og hvíldar – og hvað gerist þegar við festumst í streitu, ótta, ofurárvekni eða doða? 🛡️ Líkaminn sem verndari Viðbrögð okkar eru ekki merki um að eitthvað sé að okkur. Þau eru oft leið líkamans til að vernda okkur eftir erfiða reynslu. 👨👩👧👦 Internal Family Systems – IFS Við ræðum um ólíka „hluta“ innra með okkur, verndarhlutana og Self – þann rólega, skýra og umhyggjusama kjarna sem getur mætt öllum hlutum okkar af hlýju og forvitni. ❤️ Öryggi áður en farið er í áföllin Auður segir frá Aha og Aha Safe Place, aðferðum sem hjálpa fólki að finna hlýju, hjartatengingu og öruggan stað innra með sér. 🔥 Streita, ónæmiskerfið og bólgur Við skoðum tengsl taugakerfisins, svefns, áfalla, næringar, hreyfingar, örveruflórunnar og ónæmiskerfisins. 🎗️ Að vinna með krabbameinssjúklingum Hvernig getur orðræða og upplýsingagjöf aukið ótta – og hvernig getum við skapað meiri ró og öryggi á erfiðri vegferð? 🩻 Brjóstakrabbameinsskimun Hver er raunverulegur árangur skimunar? Hvað eru ofgreining og ofmeðhöndlun? Og fá konur nægilega skýrar upplýsingar um bæði ávinning og mögulegan skaða? Þetta er samtal um að taka skömmina úr viðbrögðum okkar, hlusta á líkamann og spyrja: Hvað hefur taugakerfið mitt þurft að læra til að halda mér öruggri? ATH: Þetta er fyrri parturinn af viðtalinu - seinni parturinn kemur innan skamms. 🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb. 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is 🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS) 🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.92|2T 20M
Andre har også lyttet til ...
- Storie ConsapevoliGionata Agliati
- Ask a ScientistScience Journal for Kids
- Story Of LanguagesSnovel Creations
- Rise With ZubinRise With Zubin
- Quint Fit EpisodesQuint Fit
- 'I AM THAT' by Ekta BathijaEkta Bathija
- Intrecci - L’arte delle relazioni Ameya Gabriella Canovi
- Chillin' with ICECloud10
- Minimal-ish: Minimalism, Intentional Living, MotherhoodCloud10
- Talk To Me In KoreanTTMIK
- Storie ConsapevoliGionata Agliati
- Ask a ScientistScience Journal for Kids
- Story Of LanguagesSnovel Creations
- Rise With ZubinRise With Zubin
- Quint Fit EpisodesQuint Fit
- 'I AM THAT' by Ekta BathijaEkta Bathija
- Intrecci - L’arte delle relazioni Ameya Gabriella Canovi
- Chillin' with ICECloud10
- Minimal-ish: Minimalism, Intentional Living, MotherhoodCloud10
- Talk To Me In KoreanTTMIK
